Þetta er önnur ábendingin sem bendir notendum BYGG-kerfisins á það gagn og þann ávinning sem notendur þess hafa af því að nota BYGG-kerfið. Kannske hefur þú ekki hugsað út í þetta ?

 

Vissirðu t.d. að með því að nota BYGG-kerfið þá aukast líkurnar um helming á að þú eigir lægsta tilboðið ?

Af 130 verkum þar sem Hannarr ehf hefur boðið í verk fyrir verktaka hefur verktakinn verið lægstur í 32 skipti, eða í 25% þeirra. Aðrir bjóðendur í þessi verk voru alls 741 og voru þeir lægstir í 98 skipti og voru því 13% líkur á að þeir næðu verkunum. Möguleikar þínir á því að þú hreppir tilboðsverk aukast þannig um helming ef þú notar BYGG-kerfið.

 

Vissirðu einnig t.d. að með því að nota BYGG-kerfið þá eykst hagur þinn af tilboðsverkum um 18% ?

Tilboð Hannarrs ehf voru 1,7% undir kostnaðaráætlun að meðaltali í öllum þessum verkum á meðan tilboð annarra, þar sem þeir voru lægstir, voru 16,4% undir kostnaðaráætlun að meðaltali.
Afkoma verka Hannarrsfyrirtækjanna var þannig 18% betri en hinna að meðaltali. Ef gengið er út frá verki upp á 100 miljónir kr. þá skiluðu verk Hannarrs 18 miljónum kr. meira í kassann en hinna bjóðendanna.

Og þetta gerðist jafnframt því að verkin voru eðlilega verðlögð, sem sést á því að verð bjóðenda Hannarrs ehf voru nálægt kostnaðaráætlun og nálægt meðaltali af hæstu og lægstu tilboðum.

 

Hver er ávinningurinn af þessu ?

o Auknar líkur á að ná verkum – sparar vinnu og kostnað við tilboðsgerðir
o Trygging þess að tilboð séu ekki of lág – kemur í veg fyrir tap á vekum
o Eykur hagnað af verkum – dæmi, afkoman 18% betri
o Lítill kostnaður af viðskiptum við Hannarr ehf – Árlegur kostnaður af því að vera áskrifandi að BYGG-kerfinu er innan við 100 þúsund kr. miðað við 100 verk í kerfinu eða færri. Sé þetta borið saman við eitt verk upp á 100 miljónir, sem er verðlagt með BYGG-kerfinu þá gefur það af sér 18 miljónum kr. hærri upphæð en annars væri raunin.

(Ætli BYGG-kerfið sé ekki alltof lágt verðlagt ?)