Um Hannarr

Um Hannarr


HANNARR EHF er verkfræðistofa á sviði byggingamála sem leggur áherslu á stjórnun, skipulag og fjármál í byggingarframkvæmdum. Fyrirtækið vinnur að því að bæta hagkvæmni framkvæmda, stuðla að gæðum bygginga og þróa lausnir sem auðvelda yfirsýn og ákvarðanatöku í byggingariðnaði.

Til að stuðla að því að þessi markmið náist býður fyrirtækið upp á sérhæfð verkfæri og upplýsingakerfi fyrir byggingariðnaðinn. Þar ber helst að nefna BYGG-kerfið, sem er heildarkerfi sem auðveldar undirbúning, kostnaðaráætlanir og stjórnun byggingarframkvæmda og heldur utan um öll gögn sem tengjast verkefnum á einum stað. Í framhaldi af því er einnig Viðhaldskerfi fasteigna, sem heldur utan um viðhald og rekstur mannvirkja yfir líftíma þeirra.

HANNARR gefur jafnframt út Byggingarlykil HANNARRS, upplýsingarit fyrir íslenskan byggingariðnað þar sem meðal annars má finna byggingarverðskrá, staðlaðar kostnaðaráætlanir, vísitölur og ýmis eyðublöð sem tengjast framkvæmdum.

Fyrirtækið var stofnað árið 1968 og er aðili að FRV – Félagi ráðgjafarverkfræðinga.


HANNARR leggur áherslu á BYGGINGARRÁÐGJÖF 

Á sviði byggingarráðgjafar hafa verkefni HANNARRS meðal annars náð til gerðar kostnaðaráætlana, útboðs- og tilboðsgerðar og þróunar upplýsingaþjónustu fyrir byggingariðnaðinn.

Á löngum starfsferli HANNARRS hafa verkefni fyrirtækisins hins vegar verið af ýmsum toga og af mismunandi stærðum. Stór verkefni hafa oft spannað langan tíma, jafnvel áratugi, og verið unnin bæði fyrir einstök fyrirtæki og fyrir heilar starfsgreinar.

Markmið verkefnanna hafa verið margvísleg — til dæmis að ná fram sparnaði, auka umsvif, draga úr áhættu eða efla þekkingu og hæfni starfsfólks. Algengt er að unnið sé að fleiri en einu þessara markmiða samtímis.

Hér fyrir neðan eru fjögur dæmi um langtímaverkefni sem HANNARR hefur unnið að á þessum sviðum. Þar er sagt frá markmiðum verkefnanna, hvernig þau voru unnin og hvaða árangri þau skiluðu.

  logo logo myndir (1) logo