Þessi liður inniheldur:
Leiðbeiningar fyrir yfirlýsingar öryggisúttektar
Svæði til að vista staðfestingu Mannvirkjastofnunar á öryggisúttekt rafkerfis
Yfirlýsing um öryggisúttekt á brunaviðvörunarkerfi, eyðublað
Yfirlýsing um öryggisúttekt á vatnsúðakerfi, eyðublað
Yfirlýsing um öryggisúttekt á uppsetningu á lyftu, eyðublað
Yfirlýsing um öryggisúttekt á hitakerfi, eyðublað
Yfirlýsing um öryggisúttekt á loftræstikerfi, eyðublað
Gögn, form fyrir vistun gagna sem tilheyra liðnum
Fremst í þessum undirflokki eru leiðbeiningar sem segja til um hvaða gögn eru í flokknum og hvernig skuli vinna með þau, ásamt tilvitnunum í lög um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð um atriði sem snerta málefni undirflokks þessa sérstaklega.
Í byggingarreglugerð eru fyrirmæli um að byggingarstjóri leggi fram undirritaðar yfirlýsingar um verklok framangreindra verkþátta eftir því sem við á.
Á þessu svæði eru einnig eyðublöð til að nota við að útbúa framangreindar yfirlýsingar og þar skal geyma afrit af þeim.
Eyðublöðin eru sett upp í samræmi við lög nr. 160/2010, Mannvirkjalög og reglugerðir þeim fylgjandi.
Eyðublöðin eru fyllt út, prentuð og undirrituð og lögð fyrir byggingarfulltrúa.
Gögn þessi má síðan prenta út að vild.