Ekki vitum við til þess að könnun hafi verið gerð á því hvaða augum starfsmenn og stjórnendur byggingarmála hér á landi líti á stafrænu þróunina í greininni. Könnun hefur hins vegar verið gerð á því í Danmörku sem gæti gefið vísbendingu um niðurstöðu samskonar könnunar hér á landi væri hún gerð.
Til fróðleiks eru hér sýndar niðurstöður könnunarinnar á því hvaða þýðingu starfsmennirnir álíta að stafræn þróun hafi á kjarnastarfsemi greinarinnar og hvers konar ávinningur er af sta
frænu þróuninni.
Alls svöruðu 801 einstaklingar og af þeim svöruðu 568 öllum atriðum könnunarinnar, sem gefur þá niðurstöðu að lítil óvissa sé í niðurstöðum könnunarinnar. Svarendurnir voru frá öllum stærðum fyrirtækja og unnu mismunandi störf innan þeirra. Mikill meirihluti svarenda var með 10 ára starfsreynslu í faginu eða meira, eða 79% og eru niðurstöðurnar athyglisverðari vegna þess.
Efst á lista svara starfsmanna á þýðingu stafrænnar þróunar á starfsemi greinarinnar var „Dreifing upplýsinga og þekkingar, bæði innávið og útávið“.
Og um ávinning af stafrænu þróuninni var efst á lista „Aukin gæði og færri mistök“.