Þann 1. september tóku gildi kröfur í Byggingarreglugerð um gerð og skil lífsferilsgreininga bygginga í umfangsflokki 2 og 3, bæði við umsóknir um byggingarleyfi bygginga.
Umfangsflokki 1. og 2. er lýst á eftirfarandi hátt í Byggingarreglugerðinni (viðmiðunarreglur):
Í umfangsflokk 1 falla m.a. geymsluhúsnæði, landbúnaðarbyggingar, frístundahús, sæluhús, stakstæðir bílskúrar, gestahús, og skálar við þegar byggð mannvirki. Sé mannvirki hærra en fjórar hæðir og stærra en 2.000 m² flokkast það almennt í umfangsflokk 2.
Í umfangsflokk 2 falla m.a. íbúðarhúsnæði og gistiheimili, atvinnuhúsnæði, iðnaðarhúsnæði og bílastæðahús. Sé mannvirki hærra en 8 hæðir og stærra en 10.000 m² flokkast það almennt í umfangsflokk 3.
Húsnæðis og Mannvirkjastofnun (HMS) birtir á vef sínum upplýsingar um hvað sé um að ræða, undir heitinu Lífsferilsgreining (LCA), og einnig leiðbeiningar um hvernig staðið skuli að gerð og skilum á greiningunni. Það er síðan á ábyrgð eigenda bygginganna að útfæra lífsferilsgreininguna og skila henni til byggingaryfirvalda á réttum tíma í byggingarferlinu.
Áskrifendur BYGG-kerfisins vita að þeir hafa undanfarin þrjú ár getað reiknað kolefnislosun byggingarefnis bygginga sinna í kerfinu. Nú hefur verið tekið viðbótarskref í þróun BYGG-kerfisins þannig að það reiknar einnig kolefnisspor annarra þátta nýbygginga í samræmi við forskrift HMS. Þeim þáttum, sundurliðuðum, hefur nú verið bætt við útreikningana í samræmi við kröfur í Byggingarreglugerð og eru þar nú reiknuð heildstæð umhverfisáhrif viðkomandi húsa yfir líftíma þeirra í 50 ár.
Þetta er unnið í nýrri uppfærslu BYGG-kerfisins og til að ná í uppfærsluna er farið inn í Stillingar í efsta borða kerfisins og valið þar „Opna nýja kerfið“. Síðan er valin kostnaðaráætlun verksins í BYGG-kerfinu og þar valinn hnappinn „Aðgerðir“ og þar „Forsenur kolefnisspors“.
Þá birtist skjal með nafninu „Kolefnisspor – Forsendur útreikninga“, sem sýnir lífsferilsgreiningu þess húss sem verið er að vinna með.