Nú finnur þú gervigreindarráðgjafa í BYGG-kerfinu

Hann birtist sem hringur neðst í hægra horni skjásins. Þú smellir á hann, slærð inn spurningu og færð svar á íslensku, byggt á leiðbeiningum Hannarrs og því sem fjallað hefur verið um í BYGG-kerfinu.

Þú skalt samt, til öryggis, yfirfara svörin í byrjun notkunar. Gervigreindin er ný í þjónustu og við erum enn, í samvinnu við notendur, að vinna í að gera svör hennar sem best.

Hvað Gervigreindin getur gert fyrir þig

1. Svarað spurningum um BYGG-kerfið

Þú getur spurt hana um hvað sem er og viðkemur kerfinu, hvernig á að stofna verk, gera kostnaðaráætlun, skipuleggja verkáætlun, finna eyðublöð, eða leysa praktísk vandamál.

Dæmi um spurningu: “Hvernig geri ég verkáætlun byggingar?”

Svarið byrjar svona:

Til að stofna verkáætlun í BYGG-kerfinu er auðveldast að nota gildandi kostnaðaráætlun sem unnin hefur verið í kerfinu.  Þá reiknar kerfið sjálft verktíma og raðað verkþáttum í eðlilega framkvæmdaröð.

Hér er hvernig þú ferð að þessu:

  1. Opnaðu viðkomandi verk
  2. Farðu í kafla 2.6 Verkáætlun
  3. Veldu hvernig áætlunin á að stofnast (Út frá nákvæmri áætlun í kafla 2.3)

Svörin birtast sem skref fyrir skref og gervigreindin vísar í nákvæmar staðsetningar í kerfinu — t.d. “Kafli 2.6 Verkáætlun” eða “Stillingar → Notendur og verk”. Þannig finnur þú alltaf hvar á að smella næst.

2. Hjálpað þér með verklýsingar

Staðlaðar verklýsingar BYGG-kerfisins eru sterkur útgangspunktur, en þær þarf alltaf að yfirfara og aðlaga að því verki sem þú ert að vinna með.

Gervigreindin:

  • Leggur til verklýsingar verkþátta verksins
  • Verklýsingarnar eru staðlaðar og þurfa aðlögun að viðkomandi verki
  • Aðstoðar við að orða aðlaganir nákvæmt og fagmannlega

Þetta sparar tíma og minnkar líkur á að mikilvægar upplýsingar gleymist í samningsgögnum.

3. Svarað spurningum um Hannarr og árangur

Ef þú spyrð um starfsemi Hannarrs eða árangur þeirra sem nota BYGG-kerfið.

Dæmi: “Getur þú sagt mér frá ávinningi þeirra sem byggja sín tilboð á upplýsingum Hannarrs ehf?”

Svar gervigreindarinnar nefnir m.a.:

  • Líkur á að verða lægstbjóðandi:Í 130 verkum þar sem Hannarr bauð fyrir verktaka var verktakinn lægstur í 25% tilvika, miðað við 13% hjá öðrum bjóðendum.
  • Afkoma verka:Tilboð byggð á BYGG-kerfinu voru að meðaltali 1,7% undir kostnaðaráætlun, miðað við 16,4% hjá öðrum lægstbjóðendum — 18% betri afkoma að meðaltali.

Gervigreindin tekur skýrt fram að þessar tölur eru niðurstöður byggðar á reynslu og gögnum Hannarrs, eins og svarið ber með sér, en er ekki loforð um árangur í öllum verkum.

4. Bendir á aðrar leiðir ef hún veit ekki

Ef gervigreindin finnur ekki skýrt svar um þitt mál, þá gerir hún tvennt:

  1. Segir það beint, engar ágiskanir.
  2. Bendir þér á að hafa samband við Hannarr á hannarr@hannarr.comeða í síma 533-3900, eða að skoða nánari leiðbeiningar á hannarr.com.

Hvernig þú kemst af stað

  1. Skráðu þig inní BYGG-kerfið eins og venjulega
  2. Opnaðu verkiðsem þú ert að vinna með (eða stofnaðu nýtt)
  3. Smelltu á hringinnneðst í hægra horni skjásins
  4. Spurðu— á íslensku, eins og þú myndir spyrja samstarfsmann

Aðgangur að gefigreindinni er innifalinn í áskriftinni að BYGG-kerfinu.

Hvert stefnum við næst

Þetta er fyrsta útgáfa Gervigreindarinnar — og hún mun þróast. Á næstu mánuðum munum skoða það að bæta við og þróa gervigreindina í BYGG-kerfinu, meðal annars með tengingu við aðrar gervigreindar-heimildir þegar þú þarft samanburð eða ítarlegri upplýsingar

Við lítum á gervigreindina sem byltingu í notkun BYGG-kerfisins og í öryggi og auknum afköstum við notkun þess. Endurgjöf þín mun móta hana, sendu okkur línu á hannarr@hannarr.com með það sem virkar vel, og það sem mætti fara betur að þínu mati.