Byggingarstigin eru flokkuð í samræmi við Byggingarreglugerð og eru eftirfarandi:

            B1  ÚTGÁFA BYGGINGARLEYFIS

            B2  FOKHELD BYGGING

            B3  BYGGING FULLGERÐ AÐ UTAN OG TILBÚIN TIL INNRÉTTINGAR

            B$  FULLGERÐ BYGGING

Þegar gerð er kostnaðaráætlun í BYGG-kerfinu þá verður þessi sundurliðun samtímis til.  Hún er kölluð fram með því að velja hnappinn „Yfirlit“ og þar „Byggingarstig“.

Þá birtist skjal með nafninu Byggingarstig áætlunar þess verks sem verið er að vinna með.  Efst í skjalinu eru heildarupphæðir hvers byggingarstigs og í framhaldinu sundurliðun á því hvaða verkefi skal vinna og ljúka á hverju byggingarstigi.

 

SKIPTING KOSTNAÐAR EFTIR BYGGINGARSTIGUM

B1 – ÚTGÁFA BYGGINGARLEYFIS
Lóðakostnaður og gatnagerðagjöld
Hönnun og teikningar
B2 – FOKHELD BYGGING
Jarðvinna, grafa og fylla
Steypumót, steypujárn, steinsteypa og forst. einingar
Stálvirki, trévirki og þak
Inntaksgjöld lagna og frárennslislagnir í jörð
Inntaksgjöld rafmagns og raflagnir í jörð og steypu
B3 – FULLGERT AÐ UTAN OG TILBÚIÐ TIL INNRÉTTINGAR
Frárennslislagnir innanhúss, neysluvatns- og hitalagnir
Rafmagnsrör og dósir í léttum innveggjum og loftum
Múrverk innanhúss
Léttir veggir og klæðningar
Járn og blikksmíði innanhúss
Málun innanhúss
Múrverk utanhúss
Tréverk utanhúss
Járn og blikksmíði utanhúss
Málun utanhúss
Gluggar gler og útihurðir
B4 – FULLGERÐ BYGGING
Innihurðir og innréttingar innsanhúss
Frágagnur gólfa innanhúss
Frágangur lóðar